Acceptance Commitment Therapy(ACT)hefur verið viðurkennd sem evidence-based þerapía fyrir þunglyndisröskun, mismunandi kvíðaröskun, þráhyggjuröskun, langvarandi verki og fl.(APA, 2010, Gloster et al., 2020). Einnig hefur ACT reynst árangursrík í því að bæta almenn líðan, og þar með er ekki nauðsynlegt að sálfræðileg vandamál séu til staðar til að njóta ávinnings af þessari meðferð.
Með aðferðum ACT getur þú aukið seiglu þína og með því betur tekist á við erfiðar tilfinningar, hugsanir og atburði. ACT meðferð veitir þér tækifæri til að gefa þessum atburðum eða hugsunum meira rými í lífi þínu, fremur en að reyna að bæla þau niður, og gerir það að verkum að þú getur sleppt tökum á neikvæðum hugsunum og tilfinningum á áhrifaríkari hátt sem og unnið með sjálfsefa og lágt sjálfsmat.
Við reynum oft að forðast erfiðar hugsanir með litlum árangri en til lengri tíma litið koma þær sterkar tilbaka, líkt og boomerang sem þú hefur hleypt af stað
- Lærðu að takast á við óþægilegar hugsanir og tilfinningar á áhrifaríkan hátt, þannig að þú getir haldið áfram að fjárfesta í þeim hlutum sem raunverulega skipta þig máli í þínu lífi.
- Lærðu að láta mótlæti ekki stöðva þig í áttina að settum markmiðum
- Lærðu að aftengja sjálfan þig frá þessum hugsunum
- Lærðu sjálfssamkennd
ACT meðferðin byr yfir mörgum æfingum og verkfærum sem verða til þess að þú öðlist meiri stjórn á lífi þínu og náir þannig að vinna með þær áskoranir sem mæta þér á leiðinni með yfirveguðum hætti.
Flokkur: Bloggar | 1.4.2025 | 14:03 (breytt kl. 14:11) | Facebook
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Október 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Apríl 2023
- Nóvember 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Október 2021
- Júní 2021
- Júlí 2020
- Júní 2019
- Nóvember 2018
- Ágúst 2018
- Febrúar 2018
- Nóvember 2017
- Ágúst 2017
- Maí 2017
- Mars 2017
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Nóvember 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning