Geðheilsa á vinnustöðum – áskorun sem krefst viðbragða

Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin (WHO) hefur spáð því að árið 2030 verði um 30% fólks heimsins orðið fyrir þunglyndi á einhverjum tímapunkti í lífi sínu. Þetta er mikilvæg áminning um að geðrænar áskoranir eru almennur þáttur í lífi margra og að vinnustaðir þurfa að bregðast við þessum þróun með markvissum hætti.

Stjórnendur fyrirtækja og stofnana bera ábyrgð á því að tryggja bæði velferð starfsfólks og árangur fyrirtækisins. Það er því nauðsynlegt að þeir séu meðvitaðir um geðræna vanda og geti útfært einstaklingsmiðaðar lausnir fyrir þá starfsmenn sem glíma við slíkar áskoranir. Slík nálgun stuðlar ekki aðeins að betri líðan starfsmanna heldur eykur einnig framleiðni og gæði verkefna sem fyrirtækið vinnur að.

Hagnýt ráð fyrir stjórnendur eru meðal annars:

  1. Regluleg eftirfylgni og stuðningsviðtöl: Fylgjast með streitu og vellíðan starfsfólks með uppbyggjandi „one-on-one“ samtölum í samráði við starfsmenn.

  2. Kortlagning streituþátta: Skrá niður helstu streituvalda innan vinnustaðarins og greina hvaða úrræði og stuðning sé þörf til að draga úr áhrifum þeirra.

  3. Fjárfesting í yfirstjórn: Tryggja að stjórnendur séu hæfir, faglegir og „authentic“ í samskiptum. Rannsaka streituþætti áður en lausnir eru kynntar til að tryggja að þær séu markvissar og gagnlegar.

  4. Fyrirbyggjandi áætlanir: Útbúa markvissa stefnu sem miðar að því að auka starfsánægju, minnka streitu og styrkja vinnustaðamenningu.

Best væri að láta útbúa sálfélagslegt áhættumat fyrir vinnustaðinn og vinna kerfisbundið með niðurstöðurnar. Með því móti má draga úr áhættu þess að missa starfsfólk vegna streitu eða annarra áhrifaþátta sem hægt er að hafa áhrif á. Slík vinnubrögð styrkja ekki aðeins fyrirtækið innanhúss heldur auka einnig samkeppnisforskot á markaði.


Bloggfærslur 30. september 2025

Höfundur

Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir

Vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafafyrirtækisins Officium ráðgjöf ehf. Hildur er með grunnmenntun í sálfræði, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, stjórnendamarkþjálfi(Executive Coach) frá opna Háskolanum, Leadership Management International stjórnendaþjálfi og mastersgráðu í Vinnusálfræði frá London Metropolitan University og mastersnemi í klínískri sálfræði frá sama skóla.

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband