Áhættumat er lögbundin skylda á öllum vinnustöðum og mikilvægt tæki í forvörnum gegn sálfélagslegum áhættuþáttum. Það má líta á það sem hluta af sálrænni öryggisstefnu vinnustaða. Því miður hafa fáir vinnustaðir tekið þetta skref og í mörgum tilfellum grípa þeir aðeins til aðgerða þegar vandamálin eru orðin veruleg og kostnaðarsöm.
Streita er að sjálfsögðu eðlilegur hvati við verkefnavinnu, en þegar álag verður of mikið eða viðvarandi vegna óheppilegra starfsaðstæðna getur það valdið alvarlegum heilsufarsvandamálum. Sumir vinnustaðir hafa brugðist við með því að bjóða starfsmönnum upp á jakkafatajóga í hádeginu eða í kaffitímum. Þó það geti verið gagnlegt að teygja úr sér og hreyfa sig, sérstaklega þegar unnið er við skrifborð allan daginn, þá leysir það ekki undirliggjandi vandamál. Það er hvorki þægilegt né raunhæft fyrir flesta að stunda jóga í vinnufatnaði, og mikilvægara er að bregðast við orsökum streitu heldur en að reyna að milda einkennin.
Jakkafatajóga er gott dæmi um skammtímalausn sem endurspeglar oft vanþekkingu stjórnenda á sálfélagslegum þáttum í starfsumhverfinu. Slík úrræði draga hvorki úr streitu né koma í veg fyrir kulnun. Ég hvet vinnustaði eindregið til að horfa inn á við og meta sálfélagslega áhættu af fullri alvöru með skipulögðu áhættumati. Með því má ekki aðeins bæta líðan starfsfólks heldur fyrirbyggja langtíma veikindi, auka starfsánægju og styrkja heildarafköst vinnustaðarins.
Bloggar | 18.6.2025 | 08:38 (breytt kl. 08:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 18. júní 2025
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Október 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Apríl 2023
- Nóvember 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Október 2021
- Júní 2021
- Júlí 2020
- Júní 2019
- Nóvember 2018
- Ágúst 2018
- Febrúar 2018
- Nóvember 2017
- Ágúst 2017
- Maí 2017
- Mars 2017
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Nóvember 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015